Monday, October 1, 2012

Meira

Nú er ég búinn að vera hérna í ca 7 vikur og allt gengur eins og í sögu. Þar seinustu helgi fór ég á mitt fyrsta gæsaskytterí rétt hjá stað sem er kallaður "thousand islands" það er þess virði að gúggla það, ekkert smá flottir kastalar á þessum eyjum! En allavega þá fórum ég, host pabbi, Cory og Ethan, við lögðum af stað fimmtudags kvöld og vorum komnir þangað um miðnætti. Gistum á moteli og vöknuðum klukkan 05.00. Þá fórum við með leiðsögumanninum á akurinn sem við myndum skjóta og gerðum allt klárt. Viðum byrjuðum svo að skjóta um 7 leytið. Við máttum skjóta að hámarki 40 gæsir og við kláruðum það á tveimur tímum. Meðan hinn hópurinn náði aðeins að skjóta 17 gæsir. Eftir það þurftum við að taka allar gæsirnar og skera út bringurnar, 80 stk! Þetta var sennilega eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert.

Þessa helgi horfði ég á minn fyrsta NFL leik, Buffalo Bills vs New England Patriots. Það er ekkert grín, einn leikur tekur er 4x15 mín, en 4 klukkutímar í útsendingu! Mínir menn í Buffalo eru þekktir fyrir að vera lélegir og þeir komu engum á óvart og töpuðu.

En ég held að þetta sé gott í bili.

læt nokkrar myndir fylgja með.




No comments:

Post a Comment