Monday, September 17, 2012

Fyrsti mánuðurinn

Ég ætla að reyna að vera með blogg meðan ég er úti og núna ætla ég að segja ykkur frá fyrsta mánuðinum og fjölskyldunni.

Ég er í litlum bæ sem heitir Avon sem er í norð-vestur New york fylki ekki svo langt frá Lake Ontario og Niagara falls. Fjölskyldan saman stendur af Greg, sem er læknir, Joanna sem er lærð hjúkrunarfræðingur en hefur unnið heima síðustu 10 ár, Cory sem er elsti bróðir minn er 22 ára og er að læra að verða lögreglumaður, Chris 19 ára og er dansari og svo Ethan sem er 15 ára. Chris og Ethan hafa báðir verið í heimakennslu.

Þegar ég komst loksins til Avon eftir 2 daga ferðalag þá hitti ég fjölskylduna og ég gæti ekki verið ánægðari. Ég gat bara verið með fjölskyldunni í 4 daga því þau voru búin að plana ferð til Ítalíu í 10 daga. Á meðan þau voru í Ítalíu þá var ég á flakki á milli heimila og fór á Demolition derby eða klessubíla keppni sem var mjög skemmtilegt. Seinustu 4 dagana meðan þau voru úti þá gisti ég hjá fjölskyldu í Avon og með strák sem er jafngamall mér og spilar soccer. Það var það besta sem gat komið fyrir mig því ég eignaðist góðan vin og hitti alla vini hans. Þegar fjölskyldan kom heim þá fór ég á shooting safety námskeið og ég nældi mér í byssuleyfi. Næstu helgi er ég að fara til watertown, NY á gæsaveiðar! Síðustu helgi var svo AFS námskeið, þar hitti ég alla krakkana sem eru hér í kring. Við fórum í garð eins og Adrenalíngarðurinn er heima. Núna er ég búinn að vera í skólanum í 1 og hálfa viku og það er mjög fínt nema endalaust heimanám! Soccer tímabilið heldur áfram og við erum búnir að kepppa 4 leiki og vinna þá alla, og í dag var ég valinn athlete of the week í skólanum og auðvitað fékk ég fría pítsu í verðlaun. Ég held að þetta sé nóg í bili og ég ætla að reyna að vera duglegur að skrifa um þetta ævintýri.

No comments:

Post a Comment