Jæja nú er ég búinn að vera í landi hinna frjálsu í rúma 3 mánuði og mikið hrikalega lýður tíminn hratt! Ég ætla að segja ykkur frá því sem ég nenni að segja frá
Í byrjun október var homecoming week í skólanum þá spilar "fótbolta" liðið sinn seinasta heimaleik. Á föstudeginum skiptu strákarnir og stelpurnar um hlutverk og stelpurnar spiluðu fótbolta og strákarnir voru klappstýrur. Ég tók þátt í því og þetta var bara frekar skemmtilegt. Okkur var kennt hálfleik sýningu, þið getið séð það á facebook. Svo á laugardagskvöldinu var homecoming ball, sem er bara eins og flashback í grunnskóla! Ballið byrjaði kl 7.30 til 10.30.
Í lok október fórum við til philadelphiu að horfa á Ethan róa. Við skoðuðum allt sem þú þarft að sjá í Philly og fengum okkur Philly cheesesteak.
Skólinn gengur mjög vel en drottinn minn dýrir hvað ég sakna FSu. Það er eins og þú sért í fangelsi og maður þarf að skrá sig út til að fara á klósettið og gert mikið mál ef að þú ert mínótu of seinn í tíma. Það eru 5 mínótur á milli tíma og svo 30 mínótna hádegismatur. En það sem mér líkar best við skólann er hvað dagurinn er stuttur og kennararnir algjörir snillingar.
En ég held að þetta sé að verða gott í bili. körfuboltinn er farinn á stað og 6 æfingar á viku 2 tíma í senn, svo á morgun er fyrsti dagurinn af dádýraveiðitímabilinu, það gæti orðið skrautlegt. Á sunnudagiinn fer ég svo með tveimur vinum mínum til Syracuse að horfa á Syracuse Orange spila!
-Grétar
Friday, November 16, 2012
Monday, October 1, 2012
Meira
Nú
er ég búinn að vera hérna í ca 7 vikur og allt gengur eins og í sögu.
Þar seinustu helgi fór ég á mitt fyrsta gæsaskytterí rétt hjá stað sem
er kallaður "thousand islands" það er þess virði að gúggla það, ekkert
smá flottir kastalar á þessum eyjum! En allavega þá fórum ég, host
pabbi, Cory og Ethan, við lögðum af stað fimmtudags kvöld og vorum
komnir þangað um miðnætti. Gistum á moteli og vöknuðum klukkan 05.00. Þá
fórum við með leiðsögumanninum á akurinn sem við myndum skjóta og
gerðum allt klárt. Viðum byrjuðum svo að skjóta um 7 leytið. Við máttum
skjóta að hámarki 40 gæsir og við kláruðum það á tveimur tímum. Meðan
hinn hópurinn náði aðeins að skjóta 17 gæsir. Eftir það þurftum við að
taka allar gæsirnar og skera út bringurnar, 80 stk! Þetta var sennilega
eitt það skemmtilegasta sem ég hef gert.
Þessa helgi horfði ég á minn fyrsta NFL leik, Buffalo Bills vs New England Patriots. Það er ekkert grín, einn leikur tekur er 4x15 mín, en 4 klukkutímar í útsendingu! Mínir menn í Buffalo eru þekktir fyrir að vera lélegir og þeir komu engum á óvart og töpuðu.
En ég held að þetta sé gott í bili.
læt nokkrar myndir fylgja með.

Monday, September 17, 2012
Fyrsti mánuðurinn
Ég ætla að reyna að vera með blogg meðan ég er úti og núna ætla ég að segja ykkur frá fyrsta mánuðinum og fjölskyldunni.
Ég er í litlum bæ sem heitir Avon sem er í norð-vestur New york fylki ekki svo langt frá Lake Ontario og Niagara falls. Fjölskyldan saman stendur af Greg, sem er læknir, Joanna sem er lærð hjúkrunarfræðingur en hefur unnið heima síðustu 10 ár, Cory sem er elsti bróðir minn er 22 ára og er að læra að verða lögreglumaður, Chris 19 ára og er dansari og svo Ethan sem er 15 ára. Chris og Ethan hafa báðir verið í heimakennslu.
Þegar ég komst loksins til Avon eftir 2 daga ferðalag þá hitti ég fjölskylduna og ég gæti ekki verið ánægðari. Ég gat bara verið með fjölskyldunni í 4 daga því þau voru búin að plana ferð til Ítalíu í 10 daga. Á meðan þau voru í Ítalíu þá var ég á flakki á milli heimila og fór á Demolition derby eða klessubíla keppni sem var mjög skemmtilegt. Seinustu 4 dagana meðan þau voru úti þá gisti ég hjá fjölskyldu í Avon og með strák sem er jafngamall mér og spilar soccer. Það var það besta sem gat komið fyrir mig því ég eignaðist góðan vin og hitti alla vini hans. Þegar fjölskyldan kom heim þá fór ég á shooting safety námskeið og ég nældi mér í byssuleyfi. Næstu helgi er ég að fara til watertown, NY á gæsaveiðar! Síðustu helgi var svo AFS námskeið, þar hitti ég alla krakkana sem eru hér í kring. Við fórum í garð eins og Adrenalíngarðurinn er heima. Núna er ég búinn að vera í skólanum í 1 og hálfa viku og það er mjög fínt nema endalaust heimanám! Soccer tímabilið heldur áfram og við erum búnir að kepppa 4 leiki og vinna þá alla, og í dag var ég valinn athlete of the week í skólanum og auðvitað fékk ég fría pítsu í verðlaun. Ég held að þetta sé nóg í bili og ég ætla að reyna að vera duglegur að skrifa um þetta ævintýri.

Subscribe to:
Comments (Atom)