Monday, February 11, 2013

6 mánuðir liðnir

Nú er ég búinn að vera í landi hinna frjálsu í 6 mánuði og ekki nema 4 og hálfur mánuðir eftir. Tíminn hefur verið alltof fljótur að líða og mig langar lítið sem ekkert að komast á klakann. En ég ætla að segja ykkur aðeins frá hvað hefur verið í gangi undanfarnar vikur og hvað sé næst á dagskrá.

Jólin voru frekar öðruvísi þar sem ekkert var í gangi á aðfangadag, en mikið var það nú ljúft að þurfa ekki að bíða í marga klukkutíma eftir jólunum. Við vöknuðum eldsnemma á jóladag til að opna gjafirnar og eftir það þá voru jólin búin. Á áramótunum fórum við á skíði og horfðum á þessa blessuðu kúlu detta á Times square. Það er ekki hægt að kaupa flugelda í New York þannig þetta voru frekar slöpp áramót.

Frekar lítið gerðist í janúar annað en það að allir skiptinemarnir á mínu svæði fórum í skíðaferð sem var mjög skemmtileg. Febrúar byrjaði með látum vegna Superbowl, ég fór í Superbowl partý hjá vinum mínum og það er ekkert smá mikið gert úr þessum eina degi. En mikið hrikalega var þetta gaman og ég verð að segja að Amerískur fótbolti er sennilega ein besta íþrótt sem hægt er að horfa á.

En næstu helgi er ég að fara í helgarferð til Boston með fjölskyldunni. Eftir einn mánuð fer ég í vikuferð til Hawaii með skiptinemum. Svo í mars fer í Senior Trip til Florida. Þannig það er nóg að gera og ég læt þetta duga í bili.

-Gretar Guðmundsson