Friday, November 16, 2012

Tíminn líður

Jæja nú er ég búinn að vera í landi hinna frjálsu í rúma 3 mánuði og mikið hrikalega lýður tíminn hratt! Ég ætla að segja ykkur frá því sem ég nenni að segja frá

Í byrjun október var homecoming week í skólanum þá spilar "fótbolta" liðið sinn seinasta heimaleik. Á föstudeginum skiptu strákarnir og stelpurnar um hlutverk og stelpurnar spiluðu fótbolta og strákarnir voru klappstýrur. Ég tók þátt í því og þetta var bara frekar skemmtilegt. Okkur var kennt hálfleik sýningu, þið getið séð það á facebook.  Svo á laugardagskvöldinu var homecoming ball, sem er bara eins og flashback í grunnskóla! Ballið byrjaði kl 7.30 til 10.30.


Í lok október fórum við til philadelphiu að horfa á Ethan róa. Við skoðuðum allt sem þú þarft að sjá í Philly og fengum okkur Philly cheesesteak.

Skólinn gengur mjög vel en drottinn minn dýrir hvað ég sakna FSu. Það er eins og þú sért í fangelsi og maður þarf að skrá sig út til að fara á klósettið og gert mikið mál ef að þú ert mínótu of seinn í tíma. Það eru 5 mínótur á milli tíma og svo 30 mínótna hádegismatur. En það sem mér líkar best við skólann er hvað dagurinn er stuttur og kennararnir algjörir snillingar.

En ég held að þetta sé að verða gott í bili. körfuboltinn er farinn á stað og 6 æfingar á viku 2 tíma í senn, svo á morgun er fyrsti dagurinn af dádýraveiðitímabilinu, það gæti orðið skrautlegt. Á sunnudagiinn fer ég svo með tveimur vinum mínum til Syracuse að horfa á Syracuse Orange spila!

-Grétar