Wednesday, March 20, 2013

Hawaii!

Dagur 1. Brottför

Ég byrjaði daginn eldsnemma til að ná flugi til New York kl 06.00. Þegar á flugvöllin var komið þá hitti ég ferðafélagana og við héldum á vit ævintýrana. Flugið til NY tók eina klst. Næsta flug var frá NY-Honolulu, ekki nema 12 tíma flug. Þegar við lentum í Honolulu þá þurftum við að finna alla hina skiptinemana og bíða eftir rútu. Þegar við komum á hótelið þá hittum við 54 aðra skiptinema allstaðar af úr heiminum og ég hitti loksins 2 Íslendinga, þær Svövu og Elvu. Þegar við fyrst hittumst áttum við í stökustu vandræðum með að tala íslensku. Dagurinn endaði svo með kvöldmat og fundi.

Dagur 2
Allir voru hrikalega spenntir fyrir þessum degi því planið var að fara að surfa og á Catamarayan túr(Bátsferð). En þegar dagurinn rann upp þá var grenjandi rigning og rok. Við reyndum nú samt að fara í sjóinn og reyna að surfa. Það gekk mjög illa og við þurftum að hætta eftir hálftíma, bátferðinni var líka frestað. Það var lítið gaman þennan dag og allir mjög ósáttir. En seinna um daginn var ákveðið að nota vonda veðrið í það að fara í verslunarmiðstöðina á staðnum. Við fórum svo út að borða á veitingastaðnum "Bubba gump shrimp" þið sem hafið séð Forrest Gump ættuð að kannast við staðinn.



Dagur 3

Við vorum öll mjög ánægð að sjá sólina skína þennan daginn og allir vöknuðu frekar snemma til að geta borðað morgunmatinn sinn á ströndinni. Við hoppuðum í rútuna og kynntumst rútublílstjóranum okkar, henni Rhonda sem kenndi okkur margt og mikið um Hawaii með sínum virkilega fyndnu aðferðum. En allavega við byrjuðum á að fara í Ríkishús(State capitol) Hawaii. Þar sáum við styttur af seinustu drottningunni og mikilvægasta Kónginum sem hét Kamehameha. Við stoppuðum stutt þar og héldum leið okkar áfram til ananas garðanna. Þar fengum við að smakka ananas ís og kókóshnetur. Eftir þetta fórum við á norður strönd eyjunnar Oahu og fórum í lítinn brimbretta bæ. Norður ströndin er mjög fræg fyrir öldurnar sem hún fær en þær geta náð meira en 10 metra hæð, þar eru svo haldin mörg brimbretta mót fyrir þá allra bestu. Í þessum litla bæ fengum við frjálsan tíma til að labba um og fá okkur að borða.  Við héldum leið okkar áfram og skoðuðum nokkrar af frægustu strendum Hawaii.
--En aðalmálið þennan dag var The Polynesian center. Þessi staður sameinar margar menningar frá eyjunum í Polynesiu. Við fórum á sýningar hja eyjunum Tonga, Tahiti og Samoa. Við lærðum að dansa hula dans og spila á úkúlele. Um kvöldið sáum við svo aðal sýninguna sem hét "HA" sem þýðir "Breath of life"






Dagur 4
Við byrjuðum daginn á að fara á útsýnispall þar sem við sáum ótrúlega fallegt landslag. En við stoppuðum ekki lengi þar og drifum okkur á Waimanalo ströndina, þessi strönd var mjög fámenn og er mest notuð af heimamönnum. Við spiluðum Amerískan fótbolta, fótbolta og blak ásamt því að synda í sjónum. Á heimleiðinni sáum við nokkra hvali sem var mjög flott og margir að sjá þetta í fyrsta skipti. Við enduðum svo daginn á að fá okkur að borða á Hard Rock og fengum svo frí tíma til að skoða um.




Dagur 5

Í dag gerðum við tilraun númer 2 að surfa í frábæru veðri. Okkur var skipt í 3 hópa og minn hópur byrjaði á því að vera bara á ströndinni að slaka á eða spila blak og Amerískan fótbolta. Við byrjuðum á að fá kennslu og svo byrjuðum við að paddla út í sjó. Að surfa er sennilega eitt af því skemmtilegasta sem ég hef gert og þetta er ekki eins erfitt og margir halda. Við fórum svo í bátaferðina og þar fengum við að stökkva í sjóinn og við sáum sjávar skjaldbökur. Ég passaði mig mikið að brenna ekki en mér tókst að sjálfsögðu að brenna axlir,eyru og ristina. Þetta var sennilega minn uppáhaldsdagur sem endaði með Pizzu og rölti um ströndina.






Dagur 6

Ferð okkar var haldið til Perluhafnar eða Pearl Harbour. Fyrir ykkur sem ekki vitið þá er þetta höfnin sem Japanir sprengdu árið 1941 sem leiddi til þess að Bandaríkin byrjuðu í Seinni Heimstyrjöldinni. Við byrjuðum á því að skoða herskipið USS Missouri en í því skipi endaði WW2. En til að fá frían túr um skipið þurftum við að sópa höfnina. Þegar það túrinn var búinn fórum við í USS Arizona memorial sem er minningarstaður um það skip. Seinna um daginn gengum við á fjallið Diamond Head sem var um 30-45 ganga. En þar uppi er ótrúlegt útsýni yfir ströndina og fjöllin. Við enduðum þennan dag með meiri frítíma um Waikiki.







Dagur 7

Næst seinasti dagurinn og við fórum á alveg rosa flotta strönd til að kafa(snorkeling). Þetta var allt útí litríkum fiskum og coral rifum en mér fannst þetta ekkert voðalega spennandi því það var sennilega meira af fólki þarna en fiskum þannig maður gat lítið kafað án þess að rekast í næstu manneskju. Þannig ég ákvað bara að hvíla mig á ströndinni og sofnaði.Eftir snorklið þá fórum við á svona alvöru Hawaii sýningu sem var mjög flott. Þar sýndu þeir hvernig á að klifra kókóshnetu tré og opna kókoshnetur.  Það endaði svo með ótrúlega flottri sýningu þar sem einn maður er með prik með eld á báðum endum og sveiflar því útum allt.Þetta kvöld borðuðum við svo seinustu kvöldmáltíðina sem hópur.







Dagur 8

Lokadagurinn var mjög leiðinlegur því við þurftum að kveðja bæði Hawaii og alla vinina, margir féldu tár. En eins leiðinlegt og það var að fara í burtu er alltaf jafn gaman að koma heim til New York og nú get ég ekki ímyndað mér hvernig það verður að koma heim á Klakann. En þessi ferð var alveg meiriháttar í alla staði og ótrúlega gaman að kynnast öllu þessu fólki sem maður mun vonandi sjá aftur einn daginn. En ég held að þetta sé nóg í bili takk fyrir mig.


--Grétar Ingi Guðmundsson

ps. aðeins 95 dagar eftir.

No comments:

Post a Comment